Header Paragraph

Aðalfundur FPR 26. maí

Image
Landslag

Aðalfundur Félags prófessora við ríkisháskóla verður haldinn í Námu, húsnæði Endurmenntunar Háskóla Íslands, þriðjudaginn 26. maí nk. kl. 15.00. Boðið verður upp á fjarfundartengingu.

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi samkvæmt 4. gr. laga félagsins:

  1. Lögð fram ársskýrsla stjórnar.
  2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
  3. Tillögur um lagabreytingar, ef fram koma.
  4. Ákveðið félagsgjald og samningsréttargjald, sbr. 6. og 10. gr.
  5. Stjórnarkjör, sbr. 8. gr.
  6. Kosið í samninganefnd, sbr. 10. gr.
  7. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga.
  8. Önnur mál.

Lög félagsins má sjá hér.