Ritlauna- og rannsóknasjóður prófessora
Félagsmenn í Félagi prófessora við ríkisháskóla sem falla undir matskerfi opinberra háskóla og gegna a.m.k. hálfu starfi eiga kost á greiðslum úr Ritlauna- og rannsóknasjóði prófessora fyrir árangur í rannsóknum á liðnu almanaksári. Skulu þeir skila skýrslu um prófessorsstörf sín (vinnumat) eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Árlegt mat liggur fyrir í síðasta lagi 1. júní og er greiðslum úthlutað úr sjóðnum 1. september það ár.
Sjóðum er skipt milli prófessora í hlutfalli við fjölda rannsóknastiga ár hvert. Við úthlutun dragast 10 stig frá rannsóknastigum og miðast greiðslur við þau stig sem umfram eru. Ekki er tekið tillit til stiga fyrir tilvitnanir. Séu rannsóknastig umfram lágmarksstigafjölda fleiri en 60 reiknast þau stig sem umfram eru í veldinu 0,8.
Reglur um Ritlauna- og rannsóknasjóð prófessora voru uppfærðar snemma á árinu 2017 en áður höfðu gilt reglur sem voru á sínum tíma settar af kjaranefnd. Í tengslum við miðlægan kjarasamning félagsins frá árinu 2009 var um það samið að mat verði lagt á störf prófessora með sama hætti og áður.
1. grein
Félagsmenn í Félagi prófessora við ríkisháskóla sem falla undir matskerfi opinberra háskóla og gegna a.m.k. hálfu starfi eiga kost á greiðslum úr Ritlauna- og rannsóknasjóði prófessora fyrir nýsköpun og árangur í rannsóknum umfram vinnuskyldu.1 Ríkissjóður leggur til sjóðsins 12,5% af föstum mánaðarlaunum prófessora.2
2. grein
Faghópar skipaðir af matskerfisnefnd meta rannsóknastörf prófessora til stiga samkvæmt lið A í Matskerfi opinberra háskóla, sbr. grein 5.4 í stofnanasamningi Félags prófessora við ríkisháskóla við Háskóla Íslands, Háskólann á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands og sbr. grein 5.3 í stofnanasamningi félagsins við Háskólann á Akureyri.
3. grein
Prófessorar geta árlega sótt um greiðslur úr sjóðnum fyrir árangur í rannsóknum á liðnu almanaksári. Skulu þeir skila skýrslum um prófessorsstörf sín á því ári eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Umsóknum ber að skila til Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands sem metur umsóknir til rannsóknastiga.
4. grein
Árlegt mat liggur fyrir í síðasta lagi 1. júní ár hvert og skal greiðslum úthlutað úr sjóðnum 1. september það ár. Prófessor getur fengið greitt úr sjóðnum á árinu eftir að hann fer á eftirlaun vegna rannsókna sem unnar eru á því ári sem hann lætur af störfum. Uni prófessor ekki stigamati getur hann skotið erindi sínu til úrskurðarnefndar.
5. grein
Sjóðnum er skipt milli prófessora í hlutfalli við fjölda rannsóknastiga ár hvert. Við úthlutun dragast 10 stig frá rannsóknastigum og miðast greiðslur við þau stig sem umfram eru. Ekki er tekið tillit til stiga fyrir tilvitnanir.
6. grein
Séu rannsóknastig umfram lágmarksstigafjölda fleiri en 60 reiknast þau stig sem umfram eru í veldinu 0,8. Sjóðnum er úthlutað í hlutfalli við umreiknuð rannsóknastig.
7. grein
Stjórn Ritlauna- og rannsóknasjóðs prófessora skal skipuð þremur mönnum til þriggja ára, einum frá Félagi prófessora við ríkisháskóla, einum frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og einum frá samstarfsneti ríkisháskólanna, sem jafnframt er formaður. Stjórnin setur sér og sjóðnum reglur að fengnu samþykki ríkisháskólanna og Félags prófessora við ríkisháskóla.
Reykjavík 15. febrúar 2017.
[1] Sbr. Samkomulag það sem gert var með Áliti nefndar um fyrirkomulag mats á störfum prófessora sem undirritað var 6. nóvember 2009 sem byggði á úrskurði kjaranefndar dags. 11. desember 2001 og samþykkt á fundi kjaranefndar 9. desember 2003.
[2] Sjá réttarsátt Félags prófessora við ríkisháskóla og fjármála- og efnahagsráðherra frá 30. apríl 2013.