Aðalfundur Félags prófessora við ríkisháskóla 24. maí 2023

Aðalfundur 2023 Félags prófessora (FPR) við ríkisháskóla verður haldinn miðvikudaginn 24. maí kl. 15-17. Fundurinn verður í Námu, húsnæði Endurmenntungar Háskóla Íslands, Dunhaga 7, Reykjavík. Einnig verður hægt að taka þátt á netinu.
Slóð inn á fundinn og fundargögn verða send félagsfólki þegar nær dregur.

Dagskrá aðalfundar samkvæmt 4. gr. laga FPR: 
1.    Lögð fram ársskýrsla stjórnar. 
2.    Lagður fram ársreikningur, gerður af löggildum endurskoðanda og yfirfarinn og áritaður af 
       skoðunarmönnum.
3.    Tillögur um lagabreytingar, ef fram koma. 
4.    Ákveðið félagsgjald sbr. 6. gr.
5.    Stjórnarkjör, sbr. 8. gr.
6.    Kosin kjörnefnd sbr. 8. gr.
7.    Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga.
8.    Önnur mál.

Félagar eru hvattir til að koma á fundinn!
 
Lög FPR eru á eftirfarandi slóð:
https://professorar.hi.is/is/um-fpr/log-felags-professora-vid-rikishaskola