Header Paragraph
Aðalfundur FPR 16. maí
Aðalfundur Félags prófessora við ríkisháskóla verður haldinn í Námu, húsnæði Endurmenntunar Háskóla Íslands, fimmtudaginn 16. maí nk. kl. 15.00. Boðið verður upp á fjarfundartengingu.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi samkvæmt 4. gr. laga félagsins:
- Lögð fram ársskýrsla stjórnar.
- Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
- Tillögur um lagabreytingar, ef fram koma.
- Ákveðið félagsgjald og samningsréttargjald, sbr. 6. og 10. gr.
- Stjórnarkjör, sbr. 8. gr.
- Kosið í samninganefnd, sbr. 10. gr.
- Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga.
- Önnur mál.