Framhaldsaðalfundur Félags prófessora við ríkisháskóla 2024 verður mánudaginn 30. september kl. 16.00-17.30. Á aðalfundinum 7. maí náðist ekki að afgreiða öll mál sem voru á dagskrá. Þegar komið var að liðnum um önnur mál var fundi frestað fram í september. Staðsetning fundarins er Háskólatorg, stofa HT-101. Einnig er hægt að taka þátt á netinu. Slóð inn á fundinn hefur verið send félögum í tölvupósti ásamt fundargögnum.