Kjarasamningur FPR við ríkið samþykktur
Kjarasamningur samþykktur
Kjarasamningur Félags prófessora við ríkisháskóla við ríkið hefur verið samþykktur af félagsfólki.
Samningurinn var samþykktur með miklum meirihluta greiddra atkvæða.
Á kjörskrá FPR voru 379 félagar.
Alls tóku þátt í atkvæðagreiðslunni 267 félagar eða 70,45%.
236 sögðu já eða 91,83%
21 sögðu nei eða 8,17%
Félag prófessora hefur því samþykkt kjarasamninginn.
Um er að ræða breytingu og framlengingu á kjarasamningi með gildistíma frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.
Samningurinn var kynntur félagsfólki mánudaginn 10. apríl. Atkvæðagreiðsla um samninginn hófst þann sama dag og lauk að hádegi 15. apríl.
Samningurinn er á heimasíðu félagsins á eftirfarandi slóð:
https://professorar.hi.is/is/kaup-og-kjor/kjarasamningar-fpr
Í tengslum við miðlæga kjarasamninginn undirritaði FPR samkomulög við ríkisháskólana sem má nálgast á slóðinni
https://professorar.hi.is/is/kaup-og-kjor/stofnanasamningar