Yfirvinna og yfirvinnuþak

Yfirvinna samkvæmt 3. gr. í viðauka við stofnanasamning félagsins við ríkisháskólana, dags. 12. desember 2019.

Hámark yfirvinnu á ári er eins og fram kemur í meðfylgjandi töflu. Prófessor er þó heimilt í samráði við yfirmann að kenna tímabundið umfram yfirvinnuþak og flytja sem samsvarar allt að eins misseris heimilaðri yfirvinnu á milli missera.

Yfirvinnuþak
  Launaflokkar frá 1.09.2020 Yfirvinna alls Þar af þjónustuyfirvinna
Prófessor I, II og III L08 - L13 540 klst/ári allt að 200 klst/ári
Prófessor IV L14 - L15 468 klst/ári allt að 200 klst/ári
Prófessor V, VI og VII L16 - L18 420 klst/ári allt að 200 klst/ári

Tímakaup fyrir þjónustuyfirvinnu er 1,0385% af mánaðarlaunum viðkomandi prófessors.

Tímakaup fyrir aðra yfirvinnu svo sem yfirvinnu vegna kennslu er fastur taxti, 0,615% af launaflokki 16-1, þó ekki lægri upphæð en 0,615% af mánaðarlaunum viðkomandi.